Skilmálar
Með kaupum á áskrift í CrossFit Reykjavík samþykki
⸻ 1. gr. – Skyldur CrossFit Reykjavík CrossFit Reykjavík skuldbindur sig til að hafa stöðina opna á auglýstum opnunartímum. Félaginu er þó heimilt að færa taðsetningu tíma eða opnunartíma ef þurfa þykir. Samningur þessi veitir áskrifanda aðgang að þjálfuðum tímum og aðstöðu CrossFit Reykjavíkur (WOD/Open Gym).
⸻ 2. gr. – Skyldur áskrifanda Áskrifandi sækir CrossFit Reykjavík á eigin ábyrgð og ber ábyrgð á eigin líkamlegri getu og heilsufari. CrossFit Reykjavík ber ekki ábyrgð á meiðslum eða tjóni sem rekja má til rangrar notkunar tækja, aðstæðna eða annarra orsaka sem stöðin ber ekki beina ábyrgð á.
Áskrifandi skuldbindur sig til að ganga vel um tæki og búnað stöðvarinnar.
⸻ 3. gr. – Gildistími Áskriftarsamningar CrossFit Reykjavíkur eru tvennslags, áskrifandi samþykkir þá skilmála sem á við um sinn samning. a) Bundinn til 12 mánaða með 3ja mánaða uppsagnarfrest b) Óbundinn með 2ja mánaða uppsagnarfrest Samningur framlengist sjálfkrafa nema áskrift sé sagt upp skriflega. Uppsögn miðast við næstu mánaðarmót og telur 2 (óbundinn samniningur) eða 3 (bundinn samningur) mánuði frá þeirri dagsetningu.
⸻ 4. gr. – Verð og innheimta Mánaðarlegt áskriftargjald er innheimt mánaðarlega með greiðslukorti eða heimabanka. Áskriftargjöld taka breytingum einusinni á ári í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs. Breytingar taka gildi 1. janúar ár hvert og eru kynntar með minnst 30 daga fyrirvara.
⸻ 5. gr. – Bundnir samningar Á 12 mánaða binditímasamningum er mánaðarverð fast út binditímann og tekur ekki vísitölubreytingum fyrr en að bindingu lokinni. Að binditíma loknum framlengist samningur sjálfkrafa nema honum sé sagt upp.
⸻ 6. gr. – Óbundnir samningar Óbundnir samningar hafa 2ja mánaða uppsagnarfrest. Verð tekur breytingum í samræmi við gildandi verðskrá og vísitöluhækkanir sbr. 4. gr.
⸻ 7. gr. – Staðgreidd kort Staðgreidd kort eru eingreiðsla og gilda á ákveðnu tímabili samkvæmt skilmálum við kaup. Kortið endurnýjast ekki sjálfkrafa og þegar gildistími kortsins rennur út fellur aðgangur niður nema ný greiðsla fari fram. Staðgreidd kort falla utan bindingartíma og uppsagnarfresta áskriftarsamninga.
⸻ 8. gr. – Persónulegir munir Áskrifandi ber ábyrgð á öllum persónulegum munum sínum á æfingasvæði. CrossFit Reykjavík ber ekki ábyrgð á meintu tjóni eða stolnum verðmætum, hvort sem þau eru geymd í skápum eða annars staðar í húsnæðinu.
⸻ 9. gr. – Ef iðkandi verður fyrir verulegum heilsubresti sem, samkvæmt ráðleggingum læknis, kemur í veg fyrir að hann geti stundað æfingar í lengri tíma, er heimilt að óska eftir tímabundinni frystingu aðildar með framvísun læknisvottorðs. Slíkar umsóknir eru metnar hverju sinni og leitast er við að verða við þeim eftir bestu getu.
⸻ 10. gr. – Með undirritun staðfestir áskrifandi að hann hafi kynnt sér og samþykkt skilmála samningsins að fullu.
Umgengnisreglur í CrossFit Reykjavík
- Ég ætla alltaf að skrá mig inn á æfingu.
- Ég ætla að gæta fyllsta öryggis á æfingum.
- Ég ætla að leggja mig fram um að framkvæma æfingarnar rétt.
- Ég ætla að ganga vel um búnað og ganga frá eftir mig.
- Ég ætla að nota magnesíumkubbana við fötuna og hvergi annars staðar.
- Ég ætla að þrífa blóð eftir mig og sótthreinsa ef til þess kemur.
Börn eru alltaf á ábyrgð foreldra/forráðamanna í húsinu og mega aldrei vera inni á æfingasvæði á æfingatíma. Verði meðlimur uppvís að notkun/neyslu ólöglegra efna/lyfja er viðkomandi réttilega brottrækur úr CFRvk.
Siðareglur starfsmanna →

Tilbúin/n að byrja?
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða leita að næstu áskorun, þá hjálpum við þér að finna réttu leiðina hjá CFR.