
Eðal CrossFit
CrossFit þjálfun með áherslu á styrk, hreyfigetu og góða heilsu til lengri tíma
Styrkur, Úthald, Hreyfing, Þol, Lyftingar, Hreysti
Um Eðal CrossFit
CrossFit Eðal eru tímar fyrir 60 ára+.
Tímarnir eru kenndir 3x í viku og hægt er að mæta kl. 09:30 og 10:30.
Allir tímar eru undir handleiðslu þjálfara sem leiðir iðkendur í gegnum styrkar og þrekæfingar.
Hægt er að byrja hvenær sem er

Algengar spurningar
Alls ekki! Þú þarft ekki að vera í góðu formi til að byrja í CrossFit - það er einmitt það sem við hjálpum þér að byggja upp!
Allar æfingar er hægt að aðlaga að getu og reynslu hvers og eins. Þjálfararnir okkar leiðbeina þér, hjálpa þér að finna rétta erfiðleikastigið og sjá til þess að þú getir æft á þínum hraða.
Það eina sem þú þarft að gera er að taka fyrsta skrefið - við hjálpum þér með restina!
Flestir byrja á grunnnámskeiði þar sem farið er yfir helstu hreyfingar CrossFit og grunnatriði í tækni. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og allir geta byrjað, óháð aldri eða líkamlegu formi.
Ef þú hefur áður stundað CrossFit eða hefur reynslu af sambærilegri þjálfun geturðu bókað þig í prufutíma og tekið stöðutékk með þjálfara.
Sendu okkur póst: cfr@cfr.is
Við mælum með grunnnámskeiði fyrir alla sem eru að byrja í CrossFit. Þar lærir þú helstu hreyfingar, rétta tækni og færð góðan grunn áður en þú byrjar í almennum tímum.
Ef þú hefur áður stundað CrossFit eða hefur góða reynslu af sambærilegri þjálfun geturðu komið í prufutíma og stöðutékk hjá þjálfara.
Sendu okkur póst: cfr@cfr.is
Það er einfalt að byrja í HYROX hjá okkur og þú þarft ekki að fara á grunnnámskeið.
HYROX hentar öllum, óháð fyrri reynslu eða líkamlegu formi.
Æfingarnar eru fjölbreyttar og hægt er að aðlaga þær að getu hvers og eins. Þjálfararnir okkar leiðbeina þér og hjálpa þér að finna þinn takt.
Þú getur því einfaldlega skráð þig í HYROX-tíma og byrjað!
Verð fyrir kort og námskeið má finna í vefverslun okkar HÉR
Það eina sem þú þarft að taka með þér eru þægileg íþróttaföt, innanhússkór og vatnsbrúsi.
Við mælum líka með að taka með handklæði, sérstaklega ef þú ætlar að nýta þér sturtuaðstöðuna eða slaka á í spa-inu eftir æfingu.
Já, að sjálfsögðu! Þú ert velkomin(n) að koma og prófa tíma hjá okkur þér að kostnaðarlausu.
Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að finna prufutíma sem hentar þér. Þannig geturðu kynnst aðstöðunni, þjálfurunum og stemningunni áður en þú ákveður að skrá þig.
Sendu okkur póst: cfr@cfr.is
Ef þú ert með reynslu af CrossFit geturðu keypt stakan tíma og mætt í opinn tíma.

Tilbúin/n að byrja?
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða leita að næstu áskorun, þá hjálpum við þér að finna réttu leiðina hjá CFR.