HVAÐ ER CrossFit
| Markmið CrossFit er að auka lífsgæði og heilsu fólks |
| CrossFit skilar miklu líkamlegu hreysti á mjög breiðum grunni |
| CrossFit kerfið er hannað þannig að hægt er að aðlaga það að getu allra, óháð líkamlegri færni, þess vegna er það tilvalið fyrir hvern sem er |
| Sömu æfingar eru gerðar af eldri borgurum og afreks íþróttamönnum, þyngdir og ákefð er aðlöguð en við breytum ekki kerfinu |
|
|
| CrossFit leggur áherslu á að bæta færni á 10 eftirfarandi sviðum: |
| 1. ÚTHALD - geta líkamans til að safna, vinna úr og bera súrefni |
| 2. ÞREK / ÞOL - geta líkamans til að vinna úr, flytja, geyma og nýta orku |
| 3. STYRKUR - geta vöðva einingar, eða samsetningu af vöðvum til að beita afli |
| 4. LIÐLEIKI - geta til að hámarka hreyfingu um liðamót |
| 5. AFL - geta vöðva til að skila hámarks afli á lágmarks tíma |
| 6. HRAÐI - geta til að draga úr þeim tíma sem það tekur að endurtaka ákveðna hreyfingu |
| 7. SAMHÆFING - geta til að sameina nokkrar mismunandi hreyfingar í eina ákveðna hreyfingu |
| 8. SNERPA - geta til að lágmarka þann tíma sem það tekur skipta frá einni hreyfingu yfir í aðra |
| 9. JAFNVÆGI - geta til að stjórna staðsetningu miðju líkamans í tengslum við undirstöðu hans |
| 10. NÁKVÆMI - geta til stjórna hreyfingu líkamans í ákveðna átt eða stjórna ákefðinni í hreyfingunni |
| CrossFit æfir grunnhreyfingar og hjálpar þér að takast á við allt það sem þú þarft að framkvæma í lífinu, bæði í leik og starfi |
| Aukin lífsgæði - lengur! |

