SÖGUR AF ÁRANGRI

 

Guðrún Elísa Þorkelsdóttir

Ég heiti Guðrún Elísa Þorkelsdóttir og fékk mjög slæmt brjósklos í hálsi í lok ársins 2008.  Rétt fyrir jól 2008 fór ég í aðgerð þar sem brjóskið var fjarlægt og gerviliðþófi settur í staðinn. Að nokkrum vikum liðnum vildi ég fara að hreyfa mig aftur en var hrædd um að valda skaða í hálsinum. Ég hafði því samband við Hrönn og bað hana að þjálfa mig til þess að koma í veg fyrir að ég bæri mig rangt að við  æfingarnar. Á þessum tíma var að hefjast heilsuátak í vinnunni hjá mér og hófst það með prófi sem var svo aftur tekið fjórum vikum síðar og svo í lok átaksins . Meðal æfinga sem prófað var í voru armbeygjur. Í fyrsta prófinu gat ég ekki gert eina armbeygju. Eftir fjórar vikur gat ég  tekið átta armbeygjur með hendurnar á bekk og hnén á gólfi. Þegar hér var komið sögu fór ég að æfa undir leiðsögn Hrannar og Ívars. Um það bil tíu vikum síðar í loka prófinu fór ég fullar þrjátíu armbeygjur á tánum plús þrjátíu til viðbótar á hnjánum.  Ég hafði því öðlast fullan styrk eftir brjósklos aðgerðina og gott betur.  Venjuleg viðmið um bata eftir aðgerð eins og ég fór í er um það bil eitt og hálft ár samkvæmt lækninum sem framkvæmdi aðgerðina. Tæplega ári síðar nýt ég enn þeirra forréttinda að fá að æfa í CrossfitReykjavík undir leiðsögn Ívars og Hrannar. Ég hef aldrei verið í jafn góðu líkamlegu og andlegu formi og geri hluti í dag sem mig hefði ekki dreymt um að ég gæti nokkurn tíma gert ásamt því að eiga auðveldara með að takast á við daglegt amstur og leysa flókin verkefni. Það hafði smitandi áhrif á aðra í fjöldyldunni að fylgjast með framförunum sem ég tók á þessu tímabili og nú er maðurinn minn og synir mínir tveir, orðnir meðlimir hjá CrossfitReyjkjavík. Fjölskyldan mín nýtur því góðs af því að æfa undir leiðsögn þeirra Ívars og Hrannar og að æfa með því frábæra fólki sem þar ræktar heilsuna. Hrönn og Ívar hafa kennt okkur hversu líkamlegt heilbrigði okkar er verðmætt og hversu nauðsynlegt það er að hlúa vel heilsunni.  Við fáum jú bara þennan eina líkama sem að við ætlum að láta endast vel og lengi og það er á okkar ábyrgð að hlúa vel að honum.