SÖGUR AF ÁRANGRI
| Elsa Björk Gunnarsdóttir |
|---|
|
|
| Vor 2009 | Nóvember 2009 |
| FRÉTTIR |
|---|
Sumarið er tíminn!
Bætum við grunnnámskeiði í hádeginu í maí og bjóðum eftirfarandi sumarverð.
Grunnnámskeið í maí auk sumarkorts 35.000 kr. Einnig bjóðum við almennt sumarkort frá 1. maí - 1. sept. á 30.000 kr.
SUMARDAGURINN FYRSTI er núna á fimmtudaginn og við ætlum að vera með ÚTIÆFINGU í tilefni dagsins :)
Æfingin er tvíþætt. Við hjólum saman frá CrossFit Reykjavík í Skeifunni kl. 10, hjólum góðan hring alla leið að Nauthólsvík en þar verður WOD dagsins tekið með trompi og þegar því líkur þá ljúkum við æfingunni með því að hjóla tilbaka í Skeifuna. Þeir sem ekki vilja hjóla eru velkomnir að mæta beint í Nauthólsvík kl. 11.
Alla páskana verða opnir vina- og fjölskyldudagar í CrossFit Reykjavík
Opið alla páskadagana frá 10-13
Krakka-Crossfit kl. 11, bæði fyrir 6-9 og 10-16 ára
Laugardaginn 7. apríl er opið eins og aðra laugardaga, 10-14
og Krakka-CrossFit á sínum vanalega tíma, 6-9 ára 9.30-10.00 og 10-16 ára kl. 12-13
Nýtt Grunnnámskeið hefst strax eftir páska og við bjóðum sérstakt vina og fjölskylduverð í apríl,
grunnnámskeið 15.000 og grunnnámskeið auk 1 mánaðarkorts 20.000 kr.
CFR leikur í tengslum við CrossFit Games Open
CrossFit Reykjavík er ein af stærstu CrossFit stöðvum í heimi.
Okkur langar að hafa sem flesta keppendur í CrossFit Games Open og blásum því til hvatningarleiks.
Leikurinn er tvíþættur:
A. Í hverri viku drögum við út einn heppinn og eina heppna sem hefur skilað inn skori, hér eru allir jafnir, óháð frammistöðu í WODinu. Veglegir vinningar eru í boði.
B. Í lok tímabilsins drögum við úr nöfnum þeirra sem hafa skilað inn öllum 5 WODunum og hlýtur sá heppni aðili 6 mánaða kort hér í CrossFit Reykjavík og handklæðanotkun eftir æfingu að auki.
Skráning fer fram á www.games.crossfit.com (kostar 10 USD) og lýkur kl 1 eftir miðnætti aðfaranótt mánudags eða um leið og skilafrestur á skori í fyrsta WODinu rennur út.
Mundu að skrá þig í CrossFit Reykjavík liðið.
Við munum aðstoða, þá sem þurfa, við að skrá sig til keppni inn á CrossFit Games Open. Greiða þarf þátttökugjaldið með kreditkorti og ef þú átt það ekki til þá getur þú greitt gjaldið hjá okkur í afgreiðslunni í Skeifunni um leið og skráning fer fram.
Enginn getur allt - Allir geta eitthvað
ALLIR GETA VERIÐ MEÐ
Frekari upplýsingar:
CrossFit OPEN stendur yfir í 5 vikur og fer þannig fram að höfuðstöðvarnar HQ senda frá sér eitt WOD í hverri viku (01:00 aðfaranótt fimmtudags) og hefur hver keppandi fram á sunnudag (01:00 aðfaranótt mánudags) til að skila inn sínu skori fyrir hvert WOD. Krafa er gerð um dómgæslu í öllum æfingum og munu keppendur og aðstandendur hjálpast að við dómgæslu.
CrossFit OPEN er ekki bara forkeppni fyrir heimsmeistaramótið í CrossFit.
CrossFit OPEN er vettvangur fyrir alla íþróttamenn, CrossFittara sem og aðra, til að bera sig saman við jafningja sína um allan heim og sanna fyrir sjálfum sér og öðrum eigin hreysti
Keppni eins og CrossFit OPEN er gulrót fyrir alla íþróttamenn til að leggja sig fram við æfingar, mataræði og heilbrigðan lífsstíl sem eykur öllum lífsgæði.
CrossFit OPEN býður upp á WOD sem langflestum er kleift að ráða við og hefðbundin skölun á þyngdum er í boði í öllum æfingum
CrossFit Reykjavík mun að sjálfsögðu leggja sitt af mörkum til að allir nái sem mestum árangri.
Á fimmtudögum mun OPEN WOD hverrar viku verða WOD dagsins þar sem allir verða hvattir til að reyna sig, renna í gegnum WODið, vinna í tækni og velja sér taktík.
Á laugardögum munum við svo blása til "keppni" þar sem OPEN WOD vikunnar verður tekið "ALL OUT" með dómurum vídeóvélum og öllu tilheyrandi.
Hefðbundnar laugardagsæfingar verða einnig í boði samhliða keppninni ef aðstæður leyfa.
Keppendur geta að sjálfsögðu tekið OPEN WODið "ALL OUT" á fimmtudögum ef aðstæður leyfa mönnum ekki að koma á laugardegi og svo er sunnudagur eftir ef dagsformið bregst hina dagana
BARNAGÆSLA
Nú opnum við í CrossFit Reykjavik notarlega aðstöðu fyrir börnin, þar er hægt að teikna, lita, leika, lesa eða horfa á barnamyndir.
Öll börn eru velkomin.
Opið verður:
Virka daga 16.30 til 19 og 10-13 á laugardögum.
Verð:
300 kr. stakur tími og 2000 kr. 10 skiptakort.
Systkynaafsláttur; greitt er full gjald fyrir eitt barn, hálft gjald fyrir önnur systkyni.
Hámarkstími fyrir hvert barn er 1,5 klst.
Glæsilegu móti í ólympískum lyftingum er lokið á Reykjavíkurleikunum.
Hvorki fleiri né færri en 10 Íslandsmet litu dagsins ljós á þessu firnasterka móti.
Keppt var skv. Sinclair staðli, sem þýðir að líkamsþyngd og heildarþyngd sem lyft eru tekin með í reikninginn og allir keppendur metnir skv. því.
Úrslit mótsins urðu þau að í kvennaflokki sigraði Christina Trier Ejstrup frá Danmörku, í öðru sæti varð Madeleine Alhner frá Svíþjóð og Anníe Mist Þórisdóttir varð í 3. sæti.
Í karlaflokki sigraði Gísli Kristjánsson úr Lyftingafélagi Reykjavíkur, í öðru sæti varð Daniel Skoglund frá Svíþjóð og í þriðja sæti varð Frederik Ægidus frá Danmörku.
Bjarki Guðmundsson úr Ármanni, setti 2 Íslandsmet í unglingaflokki 77kg og snaraði 85 kg sem er nýtt Íslandsmet og í samanlögðu 187 kg sem er líka nýtt Íslandsmet.
Anna Hulda Ólafsdóttir úr Lyftingafélagi Reykavíkur, setti 2 Íslandsmet í 58kg flokki kvenna þegar hún snaraði 55kg og 120 kg samanlagt á sínu fyrsta móti sem verður að teljast stórkostlegur árangur.
Sigurlaug Rúna Guðmundsdóttir úr Lyftingafélagi Reykjavíkur setti 3 Íslandsmet í 63 kg flokki kvenna, þegar hún snaraði 50kg, jafnhattaði 70kg og náði því 120kg samanlagt. Allt nýtt Íslandsmet og eins og hjá Önnu Huldu er Sigurlaug að keppa í fyrsta skipti, ótrúlegur árangur það.
Anníe Mist Þórisdóttir úr Lyftingafélagi Reykjavíkur, setti 2 Íslandsmet í 69 kg flokki kvenna, þegar hún jafnhattaði 92 kg og samanlagt 157 kg.
Gísli Kristjánsson úr Lyftingafélagi Reykjavíkur, setti Íslandsmet í +105kg flokki karla, þegar hann snaraði 156kg.
Annie Mist Þórisdóttir hefur gengið til liðs við eigendur CrossFit Reykjavíkur.
Hjá okkur mun hún undirbúa af kappi þátttöku sína í næsta Heimsmeistaramóti í CrossFit, taka þátt í almennri þjálfun og þjálfun þjálfara. Annie Mist er mikil fyrirmynd og hvatning alls íþróttafólks og er okkur sönn ánægja að bjóða hana velkomna til starfa.
Lyftingasamband Íslands, Ármann og Lyftingafélag Reykjavíkur bjóða þér að koma og fylgjast með alþjóðlegu lyftingamóti sem er hluti af Reykjavík International Games 2012
Mótið verður haldið sunnudaginn 22. janúar kl. 13 í CrossFit Reykjavík, Skeifunni 8 þar sem Lyftingafélag Reykjavíkur er til húsa. Aðgangur ókeypis. Bein útsending frá keppninni á sport.tv
Meðal keppenda eru Gísli Kristjánsson, Íslandsmeistari karla 2011, Annie Mist Íslandsmeistari kvenna 2011, Svíarnir Daniel Skoglund og Madeleine Alhner og danirnir Christina Trier og Frederik Ægidius.
Frábært tækifæri.
Carl Paoli verður með námskeið í CrossFit Reykjavík þann 19. febrúar. Allar nánari upplýsingar og skráning hér
Krakka CrossFit - VOR 2012
Krakka CrossFit fór vel af stað hjá okkur í haust en eftir þessa upphafsmánuði höfum við ákveðið að gera nokkrar breytingar.
Við munum breyta aldursskiptingunni þannig að núna verða tveir hópar
6-9 ára og 10-16 ára.
Þjálfun 10-16 ára verður með þessum hætti:
Krakka-WOD verða á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 16 og laugardögum kl. 12. Tímarnir verða byggðir upp með svipuðum hætti og verið hefur. Hins vegar bjóðum við upp á grunnnámskeið fyrir nýja félaga og er það námskeið 2svar í viku í 4 vikur, kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16. Nýtt grunnnámskeið hefst í upphafi hvers mánaðar.
Verð fyrir 3 mánuði er 25.000 kr. - eitt verð, óháð hvort um er að ræða grunnnámskeið eða Krakka-WOD.
Þjálfun 6-9 ára:
Þar sem þessi aldur þarf meira næði í salnum en við höfum getað boðið upp á munum við aðeins bjóða upp á 1 tíma í viku sem verður á laugardögum kl. 9.30.
Þetta er gert til prufu og vonum við að krakkarnir fái meira út úr tímanum þegar rólegt er í húsinu.
Verð fyrir 3 mánuði er 15.000 kr.
Þjálfarar eru sem fyrr Svali og Rakel og að auki verða þau Sólveig Gísladóttir og Geir Gunnar Markússon með í starfinu. Kennsla hefst mánudaginn 9. janúar.
Skráning á janúarnámskeið er á fullu skriði
Námskeiðin hefjast 9 janúar
Smelltu á rauða hnappinn hér til hliðar og skráðu þig núna
Opnunartímar yfir hátíðarnar 2011
23. des – föstudagur – 06:00-19:00
24. des – laugardagur – 10:00-13:00
25.des – sunnudagur – 11:00-13:00
26. des – mánudagur – 11:00-13:00
31. des – laugardagur – 10:00-13:00
1. jan – sunnudagur – 11:00-13:00
Aðra daga er hefðbundinn opnunartími samkvæmt stundartöflu
Opið hús í CrossFit Reykjavík yfir hátíðarnar
CrossFit Reykjavík býður þér meðlimur góður að bjóða fjölskyldu, vinum og kunningjum með þér í WOD yfir hátíðarnar, eða frá 20 des til 2 jan.
Allir velkomnir
Gleðileg Jól Hrönn og Evert
Krakka CrossFit í vetur
CrossFit Reykjavík býður upp á CrossFit þjálfun fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-16 ára í vetur.
Tímar eru aldursskiptir og verða sem hér segir:
6-9 ára mánudaga og miðvikudaga kl. 17.30-18 og laugardaga kl. 12.30-13
10-12 ára mánudaga og miðvikudaga kl. 17.00-17.30 og laugardaga kl. 12.00-12.30
13-16 ára mánudaga og miðvikudaga kl. 16.00-16.45 og laugardaga kl. 11.00-11.45
Þjálfarar eru Svali, Hrönn, Evert og Rakel.
Skráning er í afgreiðslu CFR í Skeifunni 8, einnig er hægt að skrá með því að senda netpóst á hronn@crossfitreykjavik.is.
Tímar hefjast 5. september og önninni lýkur með nýársfagnaði 28. desember.
Mánaðargjald er 5.500 kr fyrir 12 ára og yngri 6.000 kr fyrir 13-16 ára og kostar önnin því 22.000 fyrir yngri og 24.000 fyrir eldri. Systkinaafsláttur er 25%. Hægt er að nota frístundakort ÍTR og fleiri sveitafélaga upp í greiðslu.
| ÁSKORUN |
|---|
FORM -
vertu tilbúin að gera það sem þér dettur í hug, láttu ekki líkamlegt ástand takmarka þig
NÆRING -
borðaðu það sem gagnast þér og njóttu þess - slepptu óþarfa
FRELSI -
æfðu hvort sem það er á líkamsræktarstöð, í stofunni heima eða úti í náttúrunni
ÁRANGUR -
sýnilegan og “ósýnilegan” árangur, innri starfsemi líkamans í lag
TILBREYTING -
ekki æfa sömu rútínuna viku eftir viku
TÍMI -
taktu kröftugar, stuttar en árangursríkar æfingar
| LYKILATRIÐI |
|---|
Borðaðu magurt kjöt, fisk, grænmeti, ávexti og hnetur
Taktu lýsi og Omega fiskiolíu
Korn- og mjólkurvörur í lágmarki og engan viðbættan sykur
Borðaðu hóflega 5-6 sinnum á dag
Æfðu fjölbreyttar æfingar 5-6 sinnum í viku
Æfðu styrk, liðleika, þol- og þrekæfingar - ekki festast í rútínu.
| Elsa Björk Gunnarsdóttir |
|---|
|
|
| Vor 2009 | Nóvember 2009 |